Tíu stærstu félagaskiptin í Þýskalandi í sumar
MARIUS BECKER / AFP

Liðin í þýsku Bundesligunni eru byrjuð að undirbúa sig fyrir nýtt tímabil en flest félög hófu undirbúningstímabilið formlega í vikunni sem leið.

Fjöldi stórstjarna hefur samið við þýsk félög í sumar, þar á meðal spænsku bræðurnir Alex og Daniel Dujshebaev, landsliðsfyrirliði Þýskalands, Johannes Golla og þýski landsliðsmaðurinn Julian Köster.

THW Kiel, Rhein-Neckar Löwen, SG Flensburg-Handewitt og MT Melsungen eru meðal þeirra félaga sem hafa styrkt sig hvað mest fyrir baráttuna um þýska meistaratitilinn.

Stærstu félagaskiptin:

Alex Dujshebaev: Industria Kielce → VfL Gummersbach
Einn besti hægri skytta heims yfirgefur Kielce eftir áratug hjá félaginu og er ein stærstu félagaskipti Gummersbach í langan tíma. Það verður fróðlegt að sjá hann leika undir stjórn Guðjóns Vals í vetur.

Daniel Dujshebaev: Industria Kielce → TSV Hannover-Burgdorf
Yngri bróðir Alex kemur einnig frá Kielce og styrkir Hannover-liðið verulega. Hann hefur verið lykilmaður í spænska landsliðinu undanfarin ár.

Julian Köster: VfL Gummersbach → THW Kiel
Eitt stærsta innanlandsfélagaskipti sumarsins. Köster er lykilmaður í þýska landsliðinu og á að styrkja vinstri skyttustöðu Kiel til muna.

Domen Makuc: FC Barcelona → THW Kiel
Slóvenski miðjumaðurinn kemur frá Barcelona og er talinn einn efnilegasti leikstjórnandi Evrópu. Var valinn MVP á Final 4 er hann varð Evrópumeistari með Barcelona í júní.

Kentin Mahé: VfL Gummersbach → Rhein-Neckar Löwen
Reynslumikill leikstjórnandi sem sameinast aftur þjálfaranum Maik Machulla.

Johannes Golla: SG Flensburg-Handewitt → MT Melsungen
Fyrirliði þýska landsliðsins yfirgefur Flensburg og styrkir lið Melsungen.

Aymeric Minne: HBC Nantes → SG Flensburg-Handewitt
Kemur inn til að styrkja útilínu Flensburg eftir breytingar á hópnum.

Emil Bergholt: Skjern → SG Flensburg-Handewitt
Tekur við stóru hlutverki á línunni eftir brotthvarf Golla.

Simon Möller: Fenix Toulouse → SG Flensburg-Handewitt
Nýr markvörður sem kemur í stað Kevin Møller.

Andreas Palicka: HSG Wetzlar → Füchse Berlin
Einn reynslumesti markvörður Evrópu bætist í sterkan hóp Berlínar. Kemur með mikla reynslu inn í liðið eftir stutta dvöl hjá Wetzlar eftir áramót.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top