Jóhann Geir frá KA í Þór
Þór

Vinstri hornamaðurinn, Jóhann Geir Sævarsson hefur gengið í raðir Þórs frá nágrönnum þeirra í KA.

Jóhann Geir snýr því aftur í Þorpið en hann lék með liðinu á sínum tíma en hefur leikið með KA undanfarin ár.

,,Hann er okkur Þórsurum vel kunnugur en hann spilaði með okkur í yngri flokkum og einnig í meistaraflokki. Jóhann er vinstri hornamaður og mjög skemmtilegur slúttari. Hann kemur til með að styrkja hópinn okkar enn frekar sem eru gleðifréttir. Við bjóðum Jóa hjartanlega velkominn heim í Þorpið," segir í tilkynningunni frá Þór.

Jóhann Geir skoraði sjö mörk í 21 leik með KA á síðustu leiktíð en hann færðist aftar í goggunarröðina eftir að Dagur Gautason sneri til baka í KA eftir atvinnumennsku um áramótin. Hann hefur leikið með KA undanfarin sex tímabil en þar áður lék hann með Akureyri handboltafélagi.

Þór:
Komnir:
Bertram Simonsen frá Lemvig (Danmörk)
Mikkel Jensen frá Skanderborg (Danmörk)
Oliver Christensen frá Skanderborg (Danmörk)
William Skovsager frá Kyndil (Færeyjum)
Jóhann Geir Sævarsson frá KA

Farnir:
Kári Kristján Kristjánsson - hættur
Igor Chesilov
Halldór Kristinn Harðarson - Hættur
Arnór Þorri Þorsteinsson - Hættur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top