Jim Gottfridsson snýr óvænt heim til Svíþjóðar
IFK Ystad

Sænski landsliðsmaðurinn Jim Gottfridsson hefur samið við uppeldisfélag sitt IFK Ystad til næstu þriggja ára. Eftir einn glæsilegasta atvinnumannaferil sem sænskur handknattleiksmaður hefur átt snýr hann nú aftur til uppeldisfélags síns.

Það sem vekur athygli er að IFK Ystad leikur í sænsku 2.deildinni og rétt slapp við fall niður í 3.deildina á síðustu leiktíð.

Gottfridsson hefur undanfarin ár verið einn fremsti leikstjórnandi heims og var meðal annars valinn besti handknattleiksmaður heims árið 2022. Hann lék með þýska stórliðinu SG Flensburg-Handewitt frá árinu 2013 til 2025 og vann þar fjölda titla, auk þess sem hann varð Evrópumeistari með sænska landsliðinu árið 2022.

Síðasta sumar gekk hann í raðir ungverska félagsins, Pick Szeged en samningi hans við félagið var rift eftir áramót.

„Ég fékk mörg góð tilboð frá toppliðum í Svíþjóð, Danmörku og Þýskalandi og er þakklátur fyrir það. En þegar möguleikinn á að snúa heim til IFK Ystad varð að veruleika fann ég strax að þetta var rétta ákvörðunin. Þetta er félagið þar sem allt byrjaði og hér vil ég skrifa næsta kafla á ferlinum,“ sagði Gottfridsson.

Hann segir ákvörðunina ekki snúast um að ljúka ferlinum heldur að hefja nýjan kafla.

„Ég kem ekki heim til að enda ferilinn. Ég kem heim með mikinn metnað. Ég vil vinna leiki, miðla reynslu minni og hjálpa IFK Ystad að komast aftur þangað sem félagið á heima. Um leið vil ég gefa eitthvað til baka til sænsks handbolta, félagsins, borgarinnar og allra þeirra barna og ungmenna sem eiga sér sömu drauma og ég hafði.“

Tobias Lellky, formaður IFK Ystad, segir endurkomu Gottfridsson einstakt tækifæri fyrir félagið.

„Þetta er einstakt tækifæri sem kemur kannski aðeins einu sinni í sögu félags. Þegar við sáum að áhuginn var gagnkvæmur ákváðum við að gera heiðarlega tilraun til að láta þetta ganga upp.“

Hann lagði jafnframt áherslu á að samningurinn hefði ekki áhrif á fjárhag félagsins.

„Þetta er ekki áhættusöm fjárfesting. Strax í upphafi ákváðum við að ef þetta yrði að veruleika yrði verkefnið sjálfbært fjármagnað og hefði engin áhrif á rekstur félagsins eða aðra starfsemi þess.“

Fredrik Petersen, þjálfari IFK Ystad, segir komu Gottfridsson lyfta öllu starfi félagsins.

„Jim er einn besti handknattleiksmaður sem Svíþjóð hefur alið af sér. Við fáum ekki aðeins einn besta leikmann heims heldur einnig leiðtoga sem mun lyfta öllu félaginu. Kröfurnar sem hann gerir til sjálfs sín og samherja sinna munu hækka gæðin í öllu okkar starfi.“

Gottfridsson hefur á ferlinum unnið Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina, þýska meistaratitilinn og þýska bikarinn með félagsliðum sínum. Með sænska landsliðinu varð hann Evrópumeistari árið 2022 auk þess að vinna til silfurverðlauna á heimsmeistaramótinu 2021 og á Evrópumótinu 2018. Hann var kjörinn besti handknattleiksmaður heims árið 2022.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top