
Nýliðar Víkings í Olís-deild karla gerðu sér lítið fyrir og unnu ÍBV í Ragnarsmótinu í kvöld með þremur mörkum 30-27 eftir að staðan hafi verið jöfn í hálfleik 14-14. Jafnræði var með á liðunum lengi vel í leiknum en Víkingar reyndust sterkari aðilinn undir lokin og skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og tryggði sér þar með þriggja marka sigur. Besti leikmaður Grill66-deildarinnar á síðustu leiktíð, Ísak Óli Eggertsson var markahæstur í liði Víkings með sjö mörk og Þorgeir Bjarki Davíðsson skoraði sex. Sigurður Páll Matthíasson skoraði fimm mörk fyrir Víking af línunni. Hjá ÍBV var Dagur Arnarsson markahæstur með tíu mörk, Daníel Þór Ingason, Haukur Leó Magnússon og Kristófer ísak Bárðarson skoruðu allir þrjú mörk fyrir ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.