VfL Gummersbach hefur framlengt samning sinn við Guðjón Val Sigurðsson til ársins 2029. Fyrri samningur hans átti að renna út eftir tímabilið sem hefst á fimmtudaginn. Guðjón tók við Gummersbach sumarið 2020, strax eftir að hann lagði skóna á hilluna. Hann stýrði liðinu aftur upp í þýsku Bundesliguna árið 2022 og var þá valinn þjálfari ársins í 2. deildinni. Eftir tíunda sætið á fyrsta tímabilinu í Bundesligunni var hann valinn þjálfari ársins í deildinni. Guðjón hlaut sömu viðurkenningu einnig eftir síðasta tímabil og hefur því þrívegis verið valinn þjálfari ársins í Þýskalandi. „Goggi hefur mótað íþróttaþróun félagsins undanfarin sex ár og hefur haft afgerandi áhrif á hana. Hann stendur fyrir fagmennsku, metnaði og mikilli ástríðu,“ sagði Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach. Guðjón er ánægður með að framtíðin sé áfram í Gummersbach. „Ég er mjög ánægður og þakklátur fyrir traustið sem félagið sýnir mér. Við höfum byggt upp margt saman undanfarin ár en mér finnst enn að leið okkar sé langt frá því að vera á enda. Fjölskyldan mín og ég lítum á Gummersbach sem heimili okkar. VfL er fyrir mér orðið miklu meira en bara vinnuveitandi.“ Guðjón verður því áfram við stjórnvölinn hjá Gummersbach næstu þrjú árin hið minnsta og heldur áfram uppbyggingu liðsins sem hefur fest sig í sessi í þýsku úrvalsdeildinni. Fyrsti leikur Gummersbach fer fram á laugardaginn þegar þýsku meistararnir í Magdeburg koma í heimsókn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.