Serbneska stórliðið Partizan frá Belgrad er aftur komið í Meistaradeild Evrópu eftir 13 ára fjarveru og virðist ætla sér stóra hluti. Samkvæmt Instagram-síðunni Handballbase hefur félagið áhuga að fá Danann, Michael Damgaard. Partizan réði spænska þjálfarann Raúl González í sumar og hefur þegar styrkt leikmannahópinn töluvert en félagið er ekki hætt og er nú orðað við fyrrum danska landsliðsmanninn. Damgaard átti erfiða leiktíð með HØJ á síðasta tímabili er liðið féll óvænt úr dönsku úrvalsdeildinni. Hann lék um árabil með Magdeburg og varð þar tvisvar Evrópumeistari og þýskur meistari. Með danska landsliðinu varð hann Ólympíu- og heimsmeistari auk þess að vinna EM-silfur. Damgaard hefur skorað yfir 1.000 mörk í þýsku Bundesligunni. Fyrir Partizan gæti reynsla Damgaard því verið mikilvæg þegar liðið snýr aftur í Meistaradeildina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.