Íslendingaslagur og stórleikur í 16-liða úrslitunum
ADA

Dregið var í 16-liða úrslit dönsku bikarkeppninnar og þar verður sannkallaður Íslendingaslagur þegar TMS Ringsted tekur á móti TTH Holstebro. Ísak Gústafsson leikur með Ringsted en hjá Holstebro eru Jóhannes Berg Andrason og Benedikt Gunnar Óskarsson auk Arnórs Atlasonar sem þjálfara.

Elvar Ásgeirsson og Ribe-Esbjerg mæta Mors-Thy en Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og Skanderborg AGF fara til Skive.

Stórleikur umferðarinnar er hins vegar viðureign HØJ Elite og Aalborg Håndbold. HØJ leikur í næstefstu deild en fær eitt sterkasta lið Danmerkur í heimsókn og því býðst liðinu tækifæri til að slá stórveldi úr keppni. Álaborg varð bikarmeistari á síðasta tímabili og mætir því HØJ sem ríkjandi bikarmeistari.

Aðrir leikir í 16-liða úrslitunum:
Grindsted – Fredericia
Sønderjyske – GOG
Nordsjælland – Skjern
KIF Kolding – Bjerringbro-Silkeborg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top