Þýska úrvalsdeildarfélagið, VfL Gummersbach mun á ný leika einn af heimaleikjum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í hinni glæsilegu Lanxess Arena í Köln, en forráðamenn félagsins hafa engan áhuga á að flytja heimaleiki liðsins þangað til frambúðar. Gummersbach mætir Füchse Berlin í desember í svokölluðum „Highlightspiel“ félagsins og áhuginn hefur verið mikill. Um 10.000 miðar seldust á fyrstu tveimur vikunum eftir að miðasala hófst. Þrátt fyrir mikla eftirspurn segir framkvæmdastjórinn Christoph Schindler að Gummersbach eigi áfram heima í samnefndri borg. „Gummersbach á heima í Gummersbach,“ segir Schindler. Félagið hefur þó í samtölum við stuðningsmenn og samstarfsaðila fundið fyrir áhuga á því að færa einstaka stórleiki í Lanxess Arena. Frá tímabilinu 2024/25 hefur Gummersbach því leikið einn slíkan leik á tímabili í Köln. Leikirnir í Köln eru þó ekki endilega mikil fjárhagsleg búbót fyrir félagið. Fleiri áhorfendur þýða vissulega meiri miðatekjur, en kostnaðurinn við að halda leik í Lanxess Arena er jafnframt töluvert hærri en við venjulegan heimaleik. Félagið sér hins vegar tækifæri í því að ná til nýrra fyrirtækja á Kölnarsvæðinu og vekja enn meiri athygli á Gummersbach og handboltanum. Því verður áfram horft til Kölnar fyrir einstaka stórleiki, en heimavöllur Gummersbach verður áfram í Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins og með liðinu leika þrír Íslendingar, Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson og Garðar Ingi Sindrason sem gekk í raðir félagsins frá FH í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.