Börnin vildu helst að pabbi yrði rekinn
Skjern

Daninn, Kasper Søndergaard hefur tekið við sem þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Sønderjyske en ákvörðunin féll ekki í góðan jarðveg hjá börnum hans. Þetta kom fram í viðtali við hann við JydskeVestkysten.

Søndergaard, sem lék lengi með Skjern og var síðast aðstoðarþjálfari liðsins ákvað í sumar að taka stökkið og gerast þjálfari Sønderjyske. Fjölskyldan þurfti því að horfast í augu við töluverðar breytingar.

Þegar hann sagði sonum sínum frá nýja starfinu og að fjölskyldan myndi flytja frá Vestur-Jótlandi til Sønderborg voru viðbrögðin heldur neikvæð.

„Geturðu ekki bara verið rekinn?“ spurðu börnin föður sinn samkvæmt JydskeVestkysten.

Søndergaard segist þó ekki sjá eftir ákvörðuninni, þrátt fyrir að hann geri sér fulla grein fyrir áhrifunum sem hún hefur á fjölskylduna. „Þetta er hræðilega eigingjörn ákvörðun sem rífur upp hversdagslíf barnanna minna. En ég hef ekki eitt prósent af samviskubiti,“ segir Søndergaard.

Hann hafi þó ekki viljað taka ákvörðunina án stuðnings fjölskyldunnar. Fjölskyldan er enn ekki flutt til Sønderborgar en áætlað er að flutningarnir eigi sér stað fyrir jól. Fram að því þurfa börnin að venjast því að sjá föður sinn ekki lengur í græna búningi Skjern heldur ljósbláum búningi Sønderjyske.

Fyrsta stóra prófið bíður strax á morgun þegar Sønderjyske tekur á móti dönsku meisturunum í Álaborg. Danska úrvalsdeildin hefst í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top