Alfreð varar Þjóðverja við að bóka sæti í úrslitaleiknum
Sina Schuldt / AFP

Miklar væntingar eru gerðar til þýska landsliðsins fyrir HM 2027 sem fer að stórum hluta fram á heimavelli. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, vill þó ekki gefa sér neitt fyrirfram og segir alls ekki sjálfgefið að Þjóðverjar verði í úrslitaleik mótsins.

Þýskaland hefur komist í úrslitaleik á tveimur af síðustu stóru mótunum, á Ólympíuleikunum 2024 og EM 2026, en í bæði skiptin reyndist Danmörk of sterk.

Það virðist hafa orðið til þess að margir Þjóðverjar séu þegar farnir að sjá fyrir sér enn einn úrslitaleik þjóðanna á HM í janúar.

„Spurningin sem ég fæ alltaf er: Hvernig verður úrslitaleikurinn gegn Danmörku?“ sagði Alfreð á viðburði Dyn og þýsku Bundesligunnar fyrir Ofurbikarinn í München.

Alfreð bendir á að hvorki Þýskaland né Danmörk eigi tryggt sæti í úrslitaleiknum.vcÞað sannaðist meðal annars á HM 2025 þegar Þjóðverjar féllu úr leik gegn Portúgal í átta liða úrslitum.

Þrátt fyrir að vilja draga úr væntingunum leynir Gíslason því ekki að hann hefur mikla trú á liðinu sínu og segir hópinn vera frábæran.

Hinn 66 ára gamli Íslendingur telur jafnframt aldurssamsetningu liðsins gefa tilefni til mikillar bjartsýni.

Alfreð ætlar sér stóra hluti á heimavelli en vill að Þjóðverjar vinni fyrir árangrinum frekar en að ganga út frá honum fyrir mótið.

„Við erum með háleit markmið og auðvitað viljum við ná langt,“ sagði Alfreð og bætti við að sífellt erfiðara verði fyrir andstæðingana að vinna þýska liðið.

HM fer fram dagana 13.-31. janúar 2027. Þýskaland mætir Serbíu, Túnis og Úrúgvæ í riðlakeppninni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top