Einar Sverris semur við Selfoss
Selfoss

Selfoss hefur samið við Einar Sverrisson um að ganga inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil. Þar verður Einar, Erni Þrastarsyni til halds og trausts með karlalið Selfoss í Olís-deildinni.

Örn tók við liðinu af Carlos Martin Santos í sumar en Atli Kristinsson var aðstoðarmaður Carlosar.

,,Einar Sverris þarf vart að kynna fyrir Sunnlensku handbolta áhugafólki, þó víðar væri leitað. Hann er leikjahæsti og markahæsti leikmaður Selfoss frá upphafi en hann lék 272 leiki og skoraði í þeim 1204 mörk. Það er ómetanlegt fyrir ungt lið Selfoss að fá þennan reynslubolta til að miðla sinni þekkingu. Handknattleiksdeild Selfoss býður Einar hjartanlega velkominn í teymið og væntist mikils af hans innleggi," segir í tilkynningunni frá Selfossi

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top