THW Kiel kemur úr einu mesta vonbrigðatímabili í sögu félagsins en hefur brugðist við með afgerandi hætti á leikmannamarkaðnum. Julian Köster og Domen Makuc eru meðal nýrra leikmanna og fleiri lykilmenn snúa aftur eftir meiðsli. Þetta hefur orðið til þess að þýski handboltasérfræðingurinn og fyrrverandi landsliðsmaðurinn Stefan Kretzschmar telur Kiel geta orðið helsta áskorun SC Magdeburg í baráttunni um þýska meistaratitilinn. „Helsta ástæðan fyrir því að þeir eru númer eitt hjá mér sem helsti áskorandinn er sú að THW Kiel er með breiðasta leikmannahópinn í deildinni. Ekkert annað topplið er með jafn breiðan hóp,“ sagði Kretzschmar við Sport Bild. Hann telur þó áfram að Magdeburg hafi ákveðið forskot, ekki síst vegna árangurs liðsins undanfarin ár og þeirrar sigurmenningar sem hefur myndast í kringum félagið. Kiel leikur opnunarleikinn í þýsku úrvalsdeildinni næstkomandi fimmtudag þegar liðið fær Lemgo í heimsókn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.