Benni Óskars vonast til að komast til Danmerkur í lok mánaðarins
TTH Holstebro

Benedikt Gunnar Óskarsson er enn á Íslandi í endurhæfingu eftir alvarlegt slys á golfvellinum í sumar. Hann horfir þó björtum augum á batann og vonast til að geta heimsótt nýja liðsfélaga sína í Danmörku á næstu vikum.

Benedikt, sem gekk í sumar til liðs við danska úrvalsdeildarfélagið TTH Holstebro, varð fyrir óhugnanlegu slysi á golfvellinum í Grindavík í júlí. Hann varð fyrir golfkúlu aftan á höfuðið og hlaut sprungu í höfuðkúpu og blæðingu inn á heila. Í kjölfarið missti hann mátt í hægri hendi og dvaldi fjórar nætur á sjúkrahúsi.

BENEDIKT ÓSKARSSON LENTI Í ÓHUGNALEGU ATVIKI Á GOLFVELLINUM

Frá slysinu hefur Benedikt verið í endurhæfingu á Íslandi og hefur hann stigvaxandi náð aftur styrk og hreyfigetu í hægri hendinni. TTH Holstebro hefur jafnframt sýnt honum mikinn stuðning og hefur félagið gefið honum þann tíma sem hann þarf til að ná sér.

Nú rúmum mánuði eftir slysið, er Benedikt enn staddur hér á landi en vonast til þess að geta farið til Danmerkur á næstunni.

„Ég vonast til að geta farið út og heimsótt nýju liðsfélagana í lok ágúst eða byrjun september,“ sagði Benedikt í samtali við Handkastið.

Aðspurður um hvernig batinn gengi segir hann að hægt sé að sjá stöðugar framfarir, þó enn sé langt í land.

„Það er ekki mikið nýtt en allt hins vegar að verða betra og betra. Hendin er ennþá erfið en þetta þokast í rétta átt.“

Óvíst er enn hvenær Benedikt getur hafið handboltaæfingar á ný eða tekið þátt í leikjum með TTH Holstebro. Áherslan er fyrst og fremst á endurhæfinguna og að hann nái fullum bata áður en hann snýr aftur á handboltavöllinn.

Vonir standa þó til þess að næsta skref í endurkomunni verði ferðin til Danmerkur og að hitta nýja liðsfélaga sína í TTH Holstebro en hann gekk í raðir félagsins eftir að hafa orðið norskur meistari með Kolstad á síðustu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top