Þrefaldi heimsmeistarinn í handbolta, Mikkel Hansen, og eiginkona hans, hönnuðurinn Stephanie Gundelach, eru skilin. Gundelach staðfesti þetta á Instagram. „Mikkel og ég viljum segja ykkur frá því að við skildum síðasta haust. Þó við séum ekki lengur gift munum við alltaf vera fjölskylda fyrir syni okkar tvo,“ skrifaði Gundelach. Hansen og Gundelach höfðu verið eitt þekktasta par Danmerkur. Þau kynntust á Roskilde-hátíðinni árið 2017 og eignuðust soninn Eddie Max árið 2019. Þau gengu í hjónaband í maí 2020 og eignuðust ári síðar annan son, Vince. Hansen lagði skóna á hilluna árið 2024 eftir glæsilegan feril þar sem hann varð þrívegis valinn besti handboltamaður heims. Hansen átti glæstan feril og varð einn sigursælasti handboltamaður sinnar kynslóðar. Hann lék 276 landsleiki fyrir Danmörku og skoraði 1.387 mörk. Með landsliðinu varð hann Ólympíumeistari 2016 og 2024, heimsmeistari 2019, 2021 og 2023 og Evrópumeistari 2012. Hann var þrívegis valinn besti handboltamaður heims, árin 2011, 2015 og 2018, og var meðal annars valinn besti leikmaður Ólympíuleikanna í Ríó 2016 og besti leikmaður heimsmeistaramótsins þrisvar. Með félagsliðum lék Hansen meðal annars með GOG, Barcelona, AG København, Paris Saint-Germain og Álaborg. Með PSG varð hann níu sinnum franskur meistari og fimm sinnum bikarmeistari, en stærsti bikarinn sem vantaði á ferilskrá hans var sigur í Meistaradeild Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.