Þarf lengri tíma til að venjast veðrinu á Íslandi
KA

Eftir fimm ár í Slóvakíu og að loknu meistaranámi í íþróttafræði fannst slóvakíska landsliðskonunni Lenku Ratvajská tími kominn á nýja áskorun. Ísland varð fyrir valinu og segir hún tækifærið til að prófa sig áfram erlendis hafa heillað.

„Mig hafði alltaf langað til að upplifa það að spila erlendis og eftir að ég lauk meistaranámi mínu í íþróttafræði fannst mér rétti tíminn vera kominn fyrir nýja áskorun. Ég hafði líka verið í fimm ár hjá mínu fyrra félagi í Slóvakíu þannig að mér fannst ég tilbúin í breytingar og nýtt upphaf.“

Ákvörðunin um að flytja til Íslands var stór og spennan fyrir því að stíga út fyrir þægindarammann vó þungt.

„Að flytja til Íslands var stór ákvörðun en ég var mjög spennt fyrir því að stíga út fyrir þægindarammann, kynnast nýrri menningu og auðvitað halda áfram að bæta mig sem handboltamaður. Ég er mjög þakklát fyrir þetta tækifæri og hlakka til alls þess sem þessi nýi kafli hefur upp á að bjóða.“

Hún þekkti engan slóvakískan leikmann sem hafði reynslu af íslensku deildinni og leitaði því fyrst og fremst upplýsinga hjá umboðsmanni sínum og nýjum þjálfara og viðurkennir hún að þetta sé alveg glæný reynsla fyrir hana.

Hún reyndi þó að kynna sér bæði félagið og íslenska handboltann eins vel og hægt var áður en ákvörðunin var tekin.

„Ég reyndi auðvitað að afla mér eins mikilla upplýsinga og ég gat um deildina og félagið áður en ég ákvað mig. En stundum held ég að það sé líka gott að stökkva aðeins út í óvissuna.“

Fyrstu kynni hennar af Íslandi hafa verið góð þótt landið sé töluvert frábrugðið heimalandinu.

„Ísland er klárlega mjög ólíkt Slóvakíu, en á mjög jákvæðan hátt. Umhverfið er ótrúlegt, náttúran falleg og mér líkar mjög vel hversu vingjarnlegt og hlýlegt fólkið er. Hér er líka ákveðin ró sem ég kann mjög vel að meta.“

Hún hefur þegar nýtt tímann til að skoða sig um en eitt er þó enn eftir að venjast og það er veðrið.

„Ég þarf líklega aðeins lengri tíma til að venjast er íslenska veðrinu"

Á vellinum lýsir hún sér sem kraftmiklum leikmanni sem vill spila hratt og berjast fyrir hverjum bolta. Hingað til hefur hægra hornið verið hennar aðalstaða, bæði með félagsliði og slóvakíska landsliðinu, en á Íslandi bíður hennar ný áskorun.

„Hjá mínu fyrra félagi spilaði ég í hægra horninu og þar hef ég einnig spilað með slóvakíska landsliðinu. Nú stendur hins vegar ný áskorun fyrir dyrum þar sem ég mun einnig spila sem skytta. Ég er spennt fyrir því og er alltaf tilbúin að hjálpa liðinu þar sem mín er þörf.“

Hún og kærasti hennar komu til Íslands fyrir tæpum mánuði og eru því þegar farin að koma sér fyrir. Kærastinn er knattspyrnuþjálfari og hafa þau bæði haft nóg fyrir stafni síðan þau komu til landsins.

„Undirbúningstímabilið mitt er þegar hafið og hann er með sín verkefni í fótboltanum. Fyrstu vikurnar hafa því verið annasamar en um leið mjög spennandi fyrir okkur bæði. Við erum hægt og rólega að venjast nýju umhverfi og farin að líða meira eins og heima hjá okkur.“

Fram undan er stórt tímabil hjá henni. Auk þess að vilja ná árangri með KA/Þór stefnir hún á að vinna sér inn sæti í landsliði Slóvakíu fyrir Evrópumótið í desember, sem verður sérstaklega eftirminnilegt þar sem hluti mótsins fer fram í heimalandinu.

„Persónulega vil ég fyrst og fremst njóta þess að spila handbolta, leggja hart að mér á hverjum degi og halda áfram að bæta mig. Ég vil líka undirbúa mig eins vel og mögulegt er til að berjast um sæti á Evrópumótinu í desember. Það yrði mjög sérstakt fyrir mig þar sem mótið fer fram í Slóvakíu.“

Lenka segist mjög spennt fyrir tímabilinu fyrir norðan.

„Ég hlakka mikið til að hitta stuðningsmennina, kynnast félaginu betur og verða hluti af samfélaginu. Vonandi get ég lagt mitt af mörkum með orku, vinnusemi og jákvæðu hugarfari, bæði innan vallar og utan.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top