Myndi líklega þurfa sofa á sófanum
Eyjólfur Garðarsson

Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september.

Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki.

Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari Gróttu í Olís-deild kvenna Júlíus Þórir Stefánsson hefur að segja.

Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið?

Já ég er nokkuð ánægður með það. Auðvitað alltaf eitthvað, en ég er heilt yfir ánægður.

Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu?

Fyrst og fremst að koma nýjum leikmönnum inn í hópinn og skipulagið. Annars var þetta nokkuð hefðbundið. Styrkur, þol, bolti.

Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót?

Mjög góð. Stelpurnar eru í góðu standi og fullar tilhlökkunar að fara byrja þetta.

Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar?

Ég met þær nauðsynlegar og góðar. Við náðum að styrkja okkur í réttum stöðum. Ungir leikmenn í bland við eldri og reyndari.

Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur?

Það er alltaf töluvert stökk úr Grill deild yfir í Olís deild. Minna svigrúm fyrir mistök osfrv. Okkar áskorun er klárlega sú að aðlagast fljótt og örugglega. Þetta er sviðið sem við viljum vera á.

Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins?

Auðvitað er alltaf markmið þeirra liða sem koma upp að halda sér í deildinni og ná að byggja ofan á starf fyrri ára. Svo er þetta bara gamla tuggan einn leikur í einu osfrv.

Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu?

Að máta sig við bestu lið, leikmenn og þjálfara landsins. Við teljum okkur eiga fullt erindi í þetta. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta þróast. 

Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju?

Þórey Anna Ásgeirsdóttir.  Af því ég myndi líklega þurfa sofa á sófanum ef ég myndi ekki nefna hana.

Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin?

Sem mikill áhugamaður um dómgæslu þá eru þær nú nokkrar, ætla taka mér það leyfi að nefna þrjú atriði. En það væri gaman að prófa skotklukku. Einnig væri gaman að bæta við þriðja dómara, held að það fari að verða nauðsynlegt skref. Svo finnst mér að það ætti að vera mjög auðvelt að hafa VAR á öllum leikjum. Ipad á ritaraborðið og málið er dautt.

Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? 

Valur

Sjá einnig:
Viðtal við þjálfara karlaliðs ÍBV
Viðtal við þjálfara karlaliðs Selfoss
Viðtal við þjálfara karlaliðs Aftureldingar

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top