Gidsel fjórði vinsælasti handboltamaðurinn á Instagram
Jonathan Nackstrand / AFP

Handball-Planet hefur birt lista yfir þau 20 handboltafólk sem eru með flesta fylgjendur á Instagram þegar tímabilið 2026/27 er að hefjast.

Egyptinn Ahmed Elahmar trónir á toppnum með 446 þúsund fylgjendur, en Frakkinn Nikola Karabatic kemur næstur með 342 þúsund. Hollenska handboltakonan Estavana Polman er í þriðja sæti með 302 þúsund fylgjendur.

Danska stórstjarnan Mathias Gidsel er í fjórða sæti með 293 þúsund fylgjendur og er þar með sá yngsti í efstu fjórum sætunum.

Mikkel Hansen er í sjöunda sæti með 244 þúsund fylgjendur og Nora Mørk er efst norrænna kvenna í 12. sæti með 170 þúsund.

Gísli Þorgeir Kristjánsson er sá leikmaður íslenska landsliðsins sem er með flesta fylgjendur, rúmlega 35.000 fylgjendur og Viktor Gísli Hallgrímsson kemur næstur með rúmlega 26 þúsund. Bjarki Már Elísson er síðan með rúmlega 22 þúsund fylgjendur á Instagram.

20 vinsælustu handboltafólk Instagram samkvæmt Handball-Planet:

  1. Ahmed Elahmar – 446 þúsund
  2. Nikola Karabatic – 342 þúsund
  3. Estavana Polman – 302 þúsund
  4. Mathias Gidsel – 293 þúsund
  5. Stefan Kretzschmar – 263 þúsund
  6. Michael Kraus – 260 þúsund
  7. Mikkel Hansen – 244 þúsund
  8. Ali Zein – 244 þúsund
  9. Uwe Gensheimer – 185 þúsund
  10. Andreas Wolff – 185 þúsund
  11. Frank Løke – 174 þúsund
  12. Nora Mørk – 170 þúsund
  13. Niklas Landin – 164 þúsund
  14. Yehia El Deraa – 164 þúsund
  15. Hassan Kaddah – 160 þúsund
  16. Luka Karabatic – 152 þúsund
  17. Jim Gottfridsson – 144 þúsund
  18. Tess Wester – 144 þúsund
  19. Yuri Knorr – 137 þúsund
  20. Dika Mem – 134 þúsund.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top