Birkir áfram í Garðinum – Ætlar að borða rétt
Víðir

Nýliðarnir í Grill66-deild karla hafa tilkynnt að Birkir Guðsteinsson hafi skrifað undir nýjan samning við félagið og hefur gert samning til ársins 2028.

Víðir mætir Gróttu í 1.umferð Grill66-deildarinnar í Hertz-höllinni næstkomandi föstudag sem verður fyrsti leikur félagsins í Grill66-deildinni í sögunni.

,,Þetta er ánægjulegt skref og enn ein staðfestingin á þeirri sterku uppbyggingu sem á sér stað innan félagsins. Birkir er alinn upp í yngri flokkum Selfoss og ÍBV og kemur með dýrmæta reynslu í farteskinu. Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað bæði sem línu- og hornamaður, sem gefur þjálfarateyminu aukinn sveigjanleika og fleiri möguleika í uppstillingu liðsins," segir í tilkynningunni frá félaginu en þar segir ennfremur að Birkir kom ekki mikið við sögu á síðasta tímabili vegna fjölskylduaðstæðna, en árið þar á undan spilaði hann töluvert meira.

Alls hefur Birkir leikið 28 leiki og skorað 51 mark fyrir Víði.

„Ég ætla að gera mitt allra besta fyrir félagið í vetur. Það þýðir að æfa vel, borða rétt og síðast en ekki síst spila vel. Ég er spenntur að leggja mitt af mörkum og hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum," segir Birkir.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top