Erfiður dagur hjá Íslendingunum í Danmörku
Kristinn Steinn Traustason

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í dönsku úrvalsdeildinni í dag þegar önnur umferðin hófst. Ringsted og Skanderborg áttu bæði leik á heimavelli en þurftu því miður að lúta lægra haldi gegn andstæðingum dagsins.

Skanderborg tók á móti GOG í hörkuleik en gestirnir frá Fjóni reyndust sterkari og unnu góðan þriggja marka sigur, 31-34. Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti samt sem áður flottan leik fyrir heimamenn og skoraði ellefu mörk en þurfti þó átján skot til þess og bætti við þremur stoðsendingum að auki. Hann var markahæsti maður vallarins en því miður dugði það ekki til að sinni.

Í hinum leik dagsins unnu Skjern nokkuð öruggan útisigur á Ringsted, lokatölur urðu 30-40 fyrir gestina en Ísak Gústafsson var ekki með Ringsted en hann er að glíma við meiðsli eins og kom fram í vikunni.

Úrslit dagsins:

Skanderborg 31-34 GOG

Ringsted 30-40 Skjern

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top