Alltaf einhverjir að hnippa í mann
Selfoss

Í fyrradag greindu Selfyssingar frá því að þeir höfðu samið við Einar Sverrisson um að gerast aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla með Erni Þrastarsyni aðalþjálfara liðsins.

Einar er leikjahæsti og markahæsti leikmaður Selfoss frá upphafi og er hann að taka við sem aðstoðarþjálfari af Atla Kristinssyni sem hverfur til annara starfa hjá félaginu.

Við heyrðum í Einari og spurðum hvort hann hygðist líka taka slaginn í vörn liðsins í vetur. Einar hafði eftirfarandi að segja.

"Það er ekki stefnan nei. En það eru alltaf einhverjir að hnippa í mann og reyna að hvetja mann til þess. En og eins og er þá nei. En kannski breytist það. En við treystum strákunum til að leysa það almennilega" sagði Einar Sverrisson nýráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Selfoss.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top