FH-ingar urðu fyrir miklu áfalli á dögunum er Daníel Freyr Andrésson annar af markvörðum liðsins sleit hásin á æfingu liðsins og verður frá keppni næstu mánuði. Olís-deild karla hefst á fimmtudaginn en FH tekur á móti Stjörnunni í 1.umferð Olís-deildarinnar næstkomandi föstudag í Kaplakrika. Daníel Freyr stefnir á endurkomu FH-ingar hafa verið í leit af nýju markverði til að veita Jóni Þórarni Þorsteinssyni samkeppni á tímabilinu en FH leikur fyrir áramót sex leiki í riðlakeppni Evrópudeildarinnar samhliða leikjum sínum í Olís-deildinni. FH lék sinn síðasta æfingaleik fyrir tímabilið í Lambhagahöllinni í hádeginu í dag og var Handkastið á svæðinu. Þar kom í ljós að Ólafur Rafn Gíslason sem lék með ÍR í Olís-deildinni á síðustu leiktíð en setti skóna á hilluna eftir tímabilið stóð í marki FH að hluta til í leiknum. Fram hafði betur í leiknum með fimm mörkum 39-34. Ólafur Rafn er uppalinn hjá Haukum en lék einnig með Stjörnunni áður en hann gekk í raðir ÍR og hefur verið lykilmaður í liði ÍR undanfarin ár. Það verður því að teljast ansi líklegt að FH og Ólafur Rafn séu í virku samtali um að Ólafur Rafn leiki með FH í Olís-deildinni í vetur og veiti Jóni Þórarni samkeppni um markmannsstöðuna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.