
Álaborg beið sögulegan ósigur á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni þegar Fredericia HK vann sannfærandi 33–26 sigur í 3.umferð deildarinnar. Henrik Kronborg, aðstoðarþjálfari Aalborgar, var verulega ósáttur eftir leikinn. Álaborg þurfti að sætta sig við sinn fyrsta ósigur á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni í rúm þrjú ár. Fredericia HK mætti í Sparekassen Arena og vann afar sannfærandi 33–26 sigur. Álaborg hafði ekki tapað deildarleik á heimavelli síðan 10. júní 2023 og því lauk þar með ótrúlegri sigurgöngu liðsins fyrir framan sína eigin stuðningsmenn í öðrum heimaleik liðsins á tímabilinu. Fredericia var með yfirhöndina í leiknum og eftir þriggja marka forskot í hálfleik tóku gestirnir enn frekar yfir í síðari hálfleik. Munurinn varð mestur sex mörk og Fredericia stjórnaði lokakaflanum af miklu öryggi. Henrik Kronborg, aðstoðarþjálfari Aalborgar, var allt annað en sáttur við frammistöðu sinna manna og taldi að liðið hefði verið komið ansi nálægt því að lenda í vandræðum í síðustu leikjum. „Ég held að við sem lið, og það á við um okkur öll höfum átt mjög dapran leik í dag. Þetta getum við einfaldlega ekki leyft okkur. Við höfum leikið okkur að eldinum að undanförnu. Smá á móti SønderjyskE, enn meira gegn TTH Holstebro og í dag gekk þetta ekki lengur,“ sagði Kronborg. Hann viðurkenndi jafnframt að Fredericia hefði einfaldlega verið betra liðið á þessum degi. „Okkar var refsað fyrir það og töpuðum fyrir betra liði í dag.“ Það sem fór hvað mest í taugarnar á Kronborg var hversu illa Aalborg fór með dauðafærin sín gegn norska markverðinum Torbjørn Bergerud. Torbjörn Bergerud varði ítrekað frá leikmönnum Álaborgar. „Ég held að Torbjørn hafi verið með kannski 19 varin skot, þar af 12 úr alveg dauðafærum. Það er gríðarlega pirrandi að við náum ekki að nýta þau færi,“ sagði Kronborg. „Við klúðrum allt of miklu og það skapar óöryggi sem smitast yfir í leikinn. Við spilum okkur í færin en nýtum þau alls ekki nógu vel.“ Álaborg fékk tækifæri til að jafna metin undir lok fyrri hálfleiks en tókst ekki að nýta það. Fredericia fór þess í stað með þriggja marka forskot inn í hálfleik og hélt frumkvæðinu allt til leiksloka.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.