Tveir U16-landsliðsmenn ganga í raðir FH
FH

FH hefur fengið tvo unga og efnilega leikmenn til liðs við sig fyrir komandi tímabil. Þeir Guðmundur Levý Hreiðarsson og Jakob Már Kjartansson hafa gengið í raðir félagsins og æft með meistaraflokki FH á undirbúningstímabilinu.

Báðir eru fæddir árið 2010 og voru í U16 ára landsliði Íslands í sumar. Guðmundur Levý kemur til FH frá Þór á Akureyri en Jakob Már kemur frá HK.

Guðmundur Levý er sonur Hreiðars Levy Guðmundssonar, fyrrverandi landsliðsmarkvarðar og eins þekktasta markvarðar íslensks handbolta um árabil.

FH hefur því fengið tvo unga landsliðsmenn inn í hópinn og verður fróðlegt að fylgjast með framgangi þeirra á komandi tímabili.

FH hefur leik í Olís-deild karla á föstudagskvöld þegar Stjarnan kemur í heimsókn í Kaplakrika. Flautað verður til leiks klukkan 20:15.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top