
Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari HK í Olís-deild karla Halldór Jóhann Sigfússon hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Já ég hef verið ánægður með undirbúninginn og við höfum æft vel frá 16. Júlí. Það sem hefur auðvitað truflað þetta undirbúningstímabil og litað það eru þau slæmu meiðsli/slys sem við urðum fyrir í leik við FH í Hafnarfjarðarmótinu. Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu? Helstu áherslur hafa verið að spila saman nánast nýtt lið og finna jafnvægi í bæði sóknar og varnarleik. Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót? Staðan er ekki góð enda misstum við 3 leikmenn með beinbrot á einhverjum 4 min í einum leik og verða þeir allir frá í lengri tíma. Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar? Við erum í brasi vegna meiðsla en nýju leikmennirnir hafa komið mjög vel inn og hafa staðið sig vel. Auðvitað er alltaf aðlögunarferli í nýju liði en það sem ég hef séð til þessa er ég glaður með og vonandi náum við að hjálpa þeim enn meira og gera þá enn betri sem er alltaf markmiðið. Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur? Helstu áskoranir fyrir mig og liðið er að ná jafnvægi í okkar leik og koma nýjum leikmönnum í hlutverk og svo auðvitað vonandi að vaxa saman inn í tímabilið því margir leikir eru spilaðir fyrir áramót. Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins? Væntingarnar eru miklar eins og fyrir hvert tímabil sem byrjar að hausti. Mikil tilhlökkun að byrja og ég hef mikla trú á mínu liði. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að liðið er mikið breytt frá sl tímabili en ég er bjartsýnn og ég veit að strákarnir eru tilbúnir að leggja mikið á sig. Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu? Ég er spenntur að sjá hvernig okkar ungu leikmenn þroskast á þessu tímabili og hver tekur stóra stökkið og verður tilbúinn að taka meiri ábyrgð en áður. Einnig er ég spenntur að sjá hvernig deildin þróast enda mjög mörg jöfn lið í deildinni og því geta meiðsli lykilmanna haft mikil áhrif á hvernig deildin þróast bæði á toppi og botni. Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju? Arnór Óskarsson segi ég því með hann innanborðs og hvernig samsetningin á liðinu er þá værum við töluvert mikið sterkara lið. Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin? 7á 6 reglan kemur alltaf upp í kollinn á mér en síðan væri gaman að sjá hvernig leikurinn mundi þróast með skotklukku og þá í framhaldi gera leikinn hraðari með að breyta miðjureglunni eða byrja frá markmanni. Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? Haukar eru ansi þéttir finnst mér og hafa breidd sem mörg lið hafa ekki og því segi ég Haukar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.