Lasse Folkmann hefur tekið við sem aðalþjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Nordsjælland. Folkmann kemur frá TM Tønder í dönsku B-deildinni þar sem dvöl hans varð óvenju stutt. Hann náði aðeins að stýra liðinu í einum mótsleik. Nordsjælland hefur samið við hinn 34 ára gamla Folkmann til þriggja ára. Hann myndar þjálfarateymi með Nicolaj Jensen, sem hafði tímabundið stýrt liðinu síðustu vikur. Folkmann tók við TM Tønder 1. júlí síðastliðinn og hafði einnig samið þar til þriggja ára. Hann kom til Tønder eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari Sønderjyske en hafði áður meðal annars verið aðstoðarþjálfari hjá Fredericia. Dvölin í Tønder varð hins vegar afar stutt. Folkmann stýrði liðinu aðeins í einum mótsleik, 33-30 tapi gegn Grindsted í fyrstu umferð dönsku B-deildarinnar, áður en tækifærið hjá Nordsjælland kom upp. Nordsjælland þurfti að finna nýjan þjálfara eftir að félagið lét Tobias Aagaard fara í ágúst, aðeins skömmu eftir að hann hafði tekið við liðinu. Félagið sagði ástæðuna vera samskiptaaðferðir Aagaard gagnvart ungum leikmönnum sem stjórnendur töldu óásættanlegar. „Nordsjælland er metnaðarfullt félag með mikinn metnað og það höfðar mikið til mín að fá að taka þátt í þeirri vegferð,“ sagði Folkmann við heimasíðu félagsins. Hann sagðist jafnframt hafa mikinn áhuga á að vinna með ungum leikmönnum, en öflugt uppeldisstarf hefur lengi verið stór hluti af stefnu Nordsjælland. Folkmann stýrði Nordsjælland í fyrsta sinn í dönsku úrvalsdeildinni í gær þegar liðið heimsótti KIF Kolding. Nordsjælland var sex mörkum yfir í hálfleik, 18-12, en Kolding vann forskotið upp og lauk leiknum með 32-32 jafntefli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.