Mikill harmur hefur dunið yfir franska landsliðsmanninum Romain Lagarde og fjölskyldu hans en eins árs gamall sonur hans er látinn. Franska stórliðið Nantes greindi frá tíðindunum og sendi Lagarde og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Félagið hefur jafnframt óskað eftir því að friðhelgi fjölskyldunnar verði virt á þessum erfiðu tímum. „Það er með mikilli sorg sem HBC Nantes upplýsir um þann hræðilega harmleik sem hefur dunið yfir Romain og fjölskyldu hans við missi sonar þeirra,“ segir meðal annars í tilkynningu Nantes. Félagið biðlar til stuðningsmanna, samstarfsaðila, fjölmiðla og annarra að hafa ekki beint samband við Lagarde á næstu dögum og vikum og gefa fjölskyldunni það svigrúm sem hún þarf. Hinn 29 ára gamli Lagarde hefur ekki leikið með Nantes það sem af er leiktíðinni. Hann hóf atvinnumannaferil sinn hjá Nantes og lék með félaginu frá 2016 til 2019. Þaðan fór hann til Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi og síðar PAUC í Frakklandi áður en hann sneri aftur til Nantes fyrir síðustu leiktíð. Lagarde hefur verið franskur landsliðsmaður frá árinu 2017 og varð meðal annars Ólympíumeistari með Frökkum í Tókýó árið 2021. Hann hefur einnig unnið til verðlauna með Frakklandi á bæði heims- og Evrópumótum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.