Ætla að hefna fyrir tapið í KA-heimilinu í fyrra
Egill Bjarni Friðjónsson

Heil umferð fer fram í Olís-deild karla á miðvikudaginn þegar leikið verður í 3. umferð deildarinnar. Stórleikur umferðarinnar verður í KA-heimilinu þar sem grannliðin KA og Þór eigast við í Akureyrarslagnum. Leikurinn hefst klukkan 19:00.

Bæði lið hafa þegar fengið forsmekkinn af Olís-deildinni í vetur en eins og jafnan þegar Akureyrarliðin mætast má búast við mikilli baráttu og góðri stemningu í stúkunni.

Oddur Grétarsson, leikmaður Þórs, segir mikla eftirvæntingu ríkja innan liðsins fyrir nágrannaslagnum. Þórsarar ætli sér að bæta fyrir frammistöðuna í síðasta leik liðanna í KA-heimilinu og sækja tvö stig.

„Það er frábær stemning fyrir þeim leik. Seinni leikurinn gegn þeim í fyrra var mjög góður en við náðum ekki okkar sterkasta leik í KA-heimilinu. Við viljum bæta upp fyrir það og ætlum að hefna fyrir tapið,“ sagði Oddur.

KA hafði betur í KA-heimilinu

KA vann fyrri viðureign liðanna á síðustu leiktíð þegar liðin mættust í KA-heimilinu. Þórsurum tókst hins vegar að svara fyrir sig að hluta þegar liðin áttust aftur við í Íþróttahöllinni á Akureyri en þeim leik lauk með jafntefli.

Nú mætast liðin aftur á heimavelli KA og Oddur býst við mikilli stemningu og hörkuleik. Hann segir montréttinn á Akureyri undir og að Þórsarar mæti í KA-heimilið með það skýra markmið að vinna leikinn.

„Auðvitað verður þetta aðeins öðruvísi en venjulegur handboltaleikur. Þetta er KA–Þór og bæði lið vilja vera með montréttinn á Akureyri.“

Oddur fer ekki leynt með hversu mikið hann hlakkar til leiksins og segir stefnuna hjá Þórsurum skýra.

„Þetta gerist ekki betra en að mæta KA og við ætlum að taka tvö stig.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top