Afturelding hafði betur í stórleik umferðarinnar
Raggi Óla

Afturelding vann mikilvægan 27-24 sigur á FH í 2. umferð Grill 66-deildar kvenna í Mosfellsbæ í kvöld. Fyrirfram var mikið undir þrátt fyrir að tímabilið sé rétt að byrja enda bæði liðunum spáð góðu gengi í vetur.

Leikurinn var jafn og spennandi lengst af. FH hafði heldur frumkvæðið í fyrri hálfleik og komst mest þremur mörkum yfir, meðal annars í 11-8 og 13-10. Afturelding vann sig hins vegar aftur inn í leikinn undir lok hálfleiks og Matthildur Lóa Baldursdóttir minnkaði muninn í eitt mark áður en flautað var til hálfleiks, 12-13.

Jafnræðið hélt áfram eftir hlé. Andrea Ósk Þorkelsdóttir jafnaði strax í 13-13 og liðin skiptust í kjölfarið á að hafa forystuna. Afturelding komst í 16-15 en FH svaraði og komst í 18-16.

Hvorugt liðið náði þó að hrista hitt af sér. Afturelding jafnaði í 18-18 og aftur í 19-19 áður en FH náði þriggja marka forskoti, 22-19. Heimakonur svöruðu enn á ný og Katrín Helga Davíðsdóttir jafnaði í 22-22 þegar tæpar átta mínútur voru eftir.

Þar snerist leikurinn endanlega Aftureldingu í vil. Eftir að FH komst aftur yfir, 23-22, skoruðu heimakonur fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 26-23. FH náði ekki að svara á lokamínútunum og Afturelding fagnaði þriggja marka sigri, 27-24.

Katrín Helga Davíðsdóttir var markahæst hjá Aftureldingu með níu mörk og Rakel Dórothea Ágústsdóttir skoraði átta. Andrea Ósk Þorkelsdóttir bætti við þremur mörkum.

Hjá FH átti Sylvía Björt Blöndal stórleik og skoraði 13 mörk, meira en helming marka liðsins. Dagný Þorgilsdóttirskoraði þrjú en Eva AðalsteinsdóttirEva Guðrúnardóttir LongGyða Kristín Ásgeirsdóttir og Telma Medos skoruðu tvö mörk hver.

Markverðir liðanna létu einnig að sér kveða. Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir varði átta skot fyrir Aftureldingu og Sigurdís Sjöfn Freysdóttir sjö. Hjá FH varði Szonja Szöke 13 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top