Pick Szeged mæta særðir til leiks gegn GOG
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Ungverska stórliðið Pick Szeged tapaði óvænt í deildinni heima fyrir um helgina þegar liðið sótti Tatabánya heim. Lokatölur urðu 32-31 fyrir Tatabánya eftir miklar sveiflur í leiknum.

Tapið er slæmt veganesti fyrir Pick Szeged sem mætir GOG í Meistaradeild Evrópu í fyrsta leik 2.umferðarinnar sem hefst í dag.

Pick Szeged var án nokkurra lykilmanna, þeirra Bence Bánhidi, Lazar Kukić og Lukas Sandell og byrjaði leikinn afar illa. Tatabánya náði sjö marka forskoti 15-8, í fyrri hálfleik þar sem Richárd Bodó, sem yfirgaf Szeged í sumar eftir áratug hjá félaginu, lét sína gömlu félaga finna fyrir sér.

Pick Szeged minnkaði muninn í 17-13 fyrir hálfleik og mætti mun sterkara til leiks eftir hlé.

Gestirnir unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn og komust yfir, 28-27, þegar um tíu mínútur voru eftir. Tatabánya svaraði hins vegar á lokakaflanum og Szeged misnotaði vítakast auk þess sem síðasta sókn liðsins rann út í sandinn. Tatabánya fagnaði því óvæntum 32-31 sigri.

„Í fyrri hálfleik spiluðum við mjög lélegan handbolta. Við ræddum málin í hálfleik og tókst að bæta leik okkar verulega. Við börðumst vel í seinni hálfleik og vorum með leikinn í okkar höndum en okkur tókst ekki að nýta það,“ sagði Michael Apelgren, þjálfari Szeged, eftir leik.

Mario Šoštarič og Magnus Rød voru markahæstir hjá Szeged með sex mörk hvor. Éles Benedek og Daniel Mosindi skoruðu sömuleiðis sex mörk hvor fyrir Tatabánya. Szeged þarf því að hrista tapið hratt af sér áður en liðið mætir GOG í Meistaradeildinni í dag.

Pick Szeged er með tvö stig eftir sigur gegn Kristianstad í 1.umferðinni en GOG tapaði gegn Sporting á útivelli með tíu mörkum. Danirnir þurfa því nauðsynlega á sigri að halda í leiknum í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top