Gaupi harðorður í garð Einars: Hann verður að hætta þessu rugli
Egill Bjarni Friðjónsson

Guðjón Guðmundsson, Gaupi, var harðorður í garð Einars Jónssonar, þjálfara Fram, í nýjasta þætti Handkastsins og gagnrýndi hegðun hans í garð dómara og annarra starfsmanna á leikjum liðsins í Olís-deild karla.

Gaupi sagði Einar vera frábæran þjálfara en að stöðugt tuð hans í dómurum, eftirlitsdómurum og tímavörðum væri ljóður á hans starfsháttum.

„Mér finnst ljóður í leik Fram að því leytinu til að þjálfari liðsins, Einar Jónsson, hann er tuðandi í dómurum, tímavörðum og eftirlitsdómara um leið og leikurinn er flautaður á. Þetta er algjörlega óþolandi ástand fyrir þá sem eru að vinna á leiknum. Maður sér þetta hvergi í Evrópu og menn verða einfaldlega að taka á þessu,“ sagði Gaupi.

Hann gekk enn lengra og nefndi Reyni Stefánsson, formann dómaranefndar HSÍ, sérstaklega til sögunnar.

„Ég veit að Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar, er Framari en þetta á ekki að leyfast. Einar er frábær þjálfari en þetta fer óstjórnlega í taugarnar á mér. Hann lætur dómarana, eftirlitsdómarann og tímaverðina ekki í friði um leið og leikurinn er flautaður til leiks.“

Gaupi sagði hegðunina draga úr annars góðu starfi Einars með Fram. „Hann er tuðandi yfir öllu og þetta er ljóður á hans starfsháttum. Mér finnst þetta hundleiðinlegt og það verður að stöðva þetta.“

Gaupi lauk umræðunni með skýrum skilaboðum til Framþjálfarans. „Hann er frábær þjálfari með frábært lið. Hann verður að hætta þessu rugli, þetta er þvæla.“

Fram hefur byrjað tímabilið vel og fær ÍBV í heimsókn í kvöld í fyrsta leik 3. umferðar Olís-deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 en heil umferð fer fram í deildinni í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top