Þýski markvörðurinn, Philipp Seidemann sem gekk í raðir Selfoss í upphafi síðasta tímabils er farinn frá félaginu og leikur ekki meira með Selfossi í Olís-deild karla. Þetta staðfesti Örn Þrastarson þjálfari Selfoss í samtali við Handkastið. Philipp Seidemann hafði ekkert komið við sögu í leikjum Selfoss á tímabilinu. ,,Við náðum samkomulagi um riftun við hann fyrir tímabilið og hann er því farinn frá okkur," sagði Örn Þrastarson í samtali við Handkastið. ,,Við erum vel mannaðir í markmannsstöðunni og ég sá bara ekki þörf fyrir útlending í þessa stöðu. Alexander er mjög sterkur og síðan erum við með tvo unga og efnilega á eftir honum. Ég ræddi við hann um það og eftir að hafa hugsað sig um í smá tíma þá vorum við sammála um að það væri best fyrir hann að fara aftur til Þýskalands." Selfoss er án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar eftir tap gegn Val og ÍBV en liðið fær Stjörnuna í heimsókn í 3.umferð Olís-deildar karla á morgun þegar heil umferð fer fram. Leikur Selfoss og Stjörnunnar hefst klukkan 19:45 og er lokaleikur 3.umferðarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.