Kemur í ljós í dag hversu lengi Viktor verður frá
Egill Bjarni Friðjónsson)

Viktor Sigurðsson, leikmaður Fram, fer í læknisskoðun í dag þar sem frekari upplýsingar ættu að fást um hversu lengi hann verður frá keppni vegna handarbrots.

Viktor varð fyrir því óláni að handarbrotna eftir aðeins tíu mínútna leik gegn Þór í fyrstu umferð Olís-deildar karla. Hann var því ekki í leikmannahópi Fram þegar liðið vann Val í annarri umferðinni á föstudagskvöld.

Einar Jónsson, þjálfari Fram, sagði í samtali við Handkastið að Viktor færi í skoðun hjá lækni í dag og í kjölfarið ætti að skýrast betur hversu löng fjarvera hans verður.

Framarar hafa farið vel af stað þrátt fyrir meiðsli Viktors og unnið fyrstu tvo leiki sína. Liðið tekur á móti ÍBV í Úlfarsárdal á morgun klukkan 18:00 í fyrsta leik þriðju umferðar.

Fram er jafnframt vel mannað í útilínunni og var breidd liðsins meðal þess sem rætt var í nýjasta þætti Handkastsins þegar farið var yfir sigur Framara gegn Val.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top