Einn leikur fór fram í Dönsku úrvalsdeildinni í kvöld en það var fyrsti leikur sjöttu umferðarinnar. Lærisveinar Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro mættu nýliðum Skive á útivelli sem reyndist nokkuð þægilegt verkefni fyrir gestina. Staðan í hálfleik var 14-17 fyrir gestina en í síðari hálfleiknum stigu þeir á bensíngjöfina og unnu að lokum stórsigur, 29-38. Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk úr tveimur skotum fyrir Holstebro í kvöld. Sigurinn var mikilvægur fyrir Holstebro sem sitja nú í sjöunda sæti deildarinnar með fimm stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.