Elmar kom að ellefu mörkum í jafntefli
Instagram

Elmar Erlingsson átti góðan leik þegar HSG Nordhorn-Lingen gerði 31–31 jafntefli við HSC 2000 Coburg í þýsku B-deildinni í kvöld.

Coburg var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15–13, en Nordhorn-Lingen vann sig aftur inn í leikinn eftir hlé. Heimamenn náðu að jafna metin og liðin þurftu að sættast á sitt hvort stigið.

Elmar var öflugur í sóknarleik Nordhorn-Lingen. Hann skoraði fimm mörk og gaf sex stoðsendingar og kom því með beinum hætti að ellefu af 31 marki liðsins í leiknum.

Leikurinn var hluti af 4. umferð þýsku B-deildarinnar en Nordhorn Lingen er í 6.sæti deildarinnar með fimm stig en dregin verða hinsvegar af þeim sex stig þegar mótinu lýkur.

Elmar Erlings og félagar byrjar tímabilið með mínus sex stig

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top