
Pólsku handknattleikskonurnar Malgorzata Trawczynska og Andzelika Petroll hafa samið við Selfoss. Handkastið greindi frá því í morgun að þær væru að ganga í raðir félagsins og höfðu verið að æfa með liðinu að undanförnu. Nú hefur félagið tilkynnt komu þeirra beggja. Pólskur liðsstyrkur á leið til Selfoss Malgorzata er 29 ára gömul örvhent hægri skytta sem leikið hefur með pólsku liðunum Zagłębie Lubin, Piotrcovia og JKS Jarosław. Þá hefur Malgorzata einnig spilað í Ungverjalandi við góðan orðstýr með liðunum DKKA og Alba Fehérvár. Andzelika er 25 ára gamall línumaður sem leikið hefur með SPR Gdynia og Szczypiorno Kalisz í Póllandi Báðar komu þær til Íslands fyrir um viku síðan og hafa æft með Selfossi að undanförnu. ,,Það verður spennandi að fylgjast með þeim í næsta leik hjá stelpunum gegn Fram þann 1. október," segir í tilkynningunni frá Selfossi. Selfoss er með tvö stig að loknum þremur leikjum í Olís-deild kvenna. Liðið vann Val í 1.umferðinni en hefur tapað gegn ÍBV og Gróttu í síðustu tveimur leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.