Mikil eftirspurn eftir miðum á leiki Íslands á HM
Thomas Traasdahl / Ritzau Scanpix via AFP

Gríðarleg eftirspurn er eftir miðum á heimsmeistaramót karla í handbolta sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Þriðji söluglugginn fyrir mótið var opnaður fyrr í þessum mánuði og seldust um 15 þúsund miðar á aðeins hálftíma.

Ísland leikur í H-riðli mótsins í Magdeburg og allt það miðamagn sem sett var í sölu á leikdaga riðilsins seldist upp. Svipaða sögu er að segja af G-riðlinum í Kiel, þar sem Danmörk verður í eldlínunni, en allir miðar sem voru í boði á leikdaga þess riðils seldust einnig.

Mest hefur þó eftirspurnin verið eftir leikjum heimamanna í Þýskalandi. Miðarnir sem settir voru í sölu á leiki Þjóðverja í München og Köln seldust upp á aðeins nokkrum mínútum.

„Hraðinn sem aukamiðarnir seldust upp á er eftirtektarverður,“ sagði Mark Schober, framkvæmdastjóri þýska handknattleikssambandsins, þegar greint var frá miðasölunni.

Enn verður þó möguleiki á að tryggja sér miða á mótið. Fjórði og síðasti söluglugginn verður opnaður 1. desember þegar síðustu miðarnir verða settir í almenna sölu.

HM karla hefst 13. janúar og lýkur með úrslitaleik í Köln 31. janúar. Ísland leikur alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni í GETEC Arena í Magdeburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top