Dregið hefur verið í átta liða úrslit Santander Cup, dönsku bikarkeppninnar í handbolta, en fjögur lið tryggja sér sæti á Final4-helgi keppninnar. Danska stórliðið Álaborg fær erfiðan útileik gegn Sønderjyske. Álaborg tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum með 30-25 sigri gegn HØJ Elite í gærkvöldi. Þá verður boðið upp á áhugaverðan slag þegar Bjerringbro-Silkeborg tekur á móti Skjern. Íslendingalið, TTH Holstebro fær Fredericia í heimsókn. Eitt sæti í átta liða úrslitunum er enn óráðið. Sigurvegari leiks Skive og Skanderborg AGF mætir Mors-Thy en með Skanderborg leikur Kristján Örn Kristjánsson, Donni. Leikur Skive og Skanderborg fer ekki fram fyrr en 29. september. Skive/Skanderborg AGF – Mors-Thy Sigurvegarar leikjanna fjögurra tryggja sér sæti á Final4-helgi dönsku bikarkeppninnar.Átta liða úrslit Santander Cup:
TTH Holstebro – Fredericia
Sønderjyske – Álaborg
Bjerringbro-Silkeborg – Skjern

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.