KA lagði grunninn í fyrri hálfleik og vann Val á Hlíðarenda
HSÍ

KA vann sterkan sex marka útisigur á Val, 39-33, í Olís deild karla í kvöld. Akureyringar lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik og fóru með átta marka forskot inn í leikhlé, 22-14.

KA byrjaði leikinn af miklum krafti og náði snemma góðum tökum á honum. Eftir nokkuð jafnar upphafsmínútur fóru gestirnir að slíta sig frá Val og staðan var meðal annars 12-6 KA í vil eftir tæplega 16 mínútur.

Valsmenn áttu í miklum vandræðum með að stöðva sóknarleik KA og forskot gestanna hélt áfram að vaxa. KA komst í 18-11 og síðan 21-13 áður en liðin gengu til búningsherbergja í stöðunni 22-14 fyrir KA.

Valur sýndi allt annað yfirbragð eftir hlé og náði hægt og rólega að vinna sig aftur inn í leikinn. Heimamenn minnkuðu muninn niður í fjögur mörk, 26-22, og þegar rúmar ellefu mínútur voru eftir var staðan 30-27.

Nær komust Valsmenn þó ekki. KA svaraði á mikilvægum augnablikum og hélt heimamönnum í hæfilegri fjarlægð á lokakaflanum. Akureyringar sigldu að lokum heim 39-33 sigri.

Gunnar Róbertsson átti stórleik fyrir Val og skoraði 13 mörk, langmest sinna manna. Arnór Snær Óskarsson kom næstur með fimm mörk og Bessi Teitsson og Tjörvi Týr Gíslason skoruðu þrjú hvor.

Hjá KA voru Dagur Árni Heimisson og Dagur Gautason markahæstir með tíu mörk hvor. Arnór Ísak Haddsson bætti við fjórum mörkum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top