
Í kvöld mættust ÍR og Selfoss 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Skógarselinu. ÍR-ingar tóku strax yfirhöndina í byrjun leiks og leiddu allan fyrri hálfleikinn. Selfyssingar voru þó ekki langt frá þeim og önduðu lengi vel í hálsmálið á þeim. Hálfleikstölur voru 22-17 fyrir ÍR. Eftir 10 mínútna seinni hálfleik voru ÍR-ingar komnir með 10 marka forskot. Mest náðu þeir 15 marka forskoti en lokatölur urðu 47-37. Jökull Blöndal setti 13 mörk fyrir ÍR og Bernand Darkoh setti 8 mörk. Markmennirnir vörðu 10 skot samtals. Hjá Selfossi setti Aron Leo Guðmundsson 8 mörk. Ísak Kristinn Jónsson varði 8 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.