Álaborg var fyrsti kostur Færeyingsins
UWE ANSPACH /AFP

Elias Ellefsen á Skipagøtu segir að Álaborg hafi verið efst á óskalistanum þegar möguleikinn á að ganga til liðs við danska stórliðið kom upp.

Álaborg tilkynnti í dag að færeyski leikstjórnandinn hefði skrifað undir fjögurra ára samning við félagið og gengur hann í raðir félagsins næsta sumar. Elias verður þá 25 ára gamall og kemur á frjálsri sölu frá THW Kiel.

Elias segir það ekki hafa verið erfiða ákvörðun að velja Álaborg þegar félagið sýndi honum áhuga.

„Álaborg er án nokkurs vafa stærsta og best rekna félagið á Norðurlöndunum og það var auðvitað mjög spennandi fyrir mig að fá tækifæri til að verða hluti af því. Þess vegna var Álaborg líka minn fyrsti kostur þegar möguleikinn á félagaskiptum kom upp,“ sagði Elias við heimasíðu Álaborgar.

Metnaður danska stórliðsins hafði einnig mikið að segja við ákvörðun Eliasar. Álaborg hefur sett stefnuna á að vinna Meistaradeild Evrópu og fær Færeyingurinn því áfram tækifæri til að berjast um stærstu titlana í evrópskum handbolta.

Elias var valinn besti ungi leikmaður heims af Alþjóðahandknattleikssambandinu árið 2024 og varð þýskur bikarmeistari með Kiel árið 2025. Hann skoraði 150 mörk í 22 leikjum fyrir Kiel í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili og var markahæsti leikmaður liðsins. Þá var hann valinn besti leikstjórnandi deildarinnar og í lið ársins.

Elias á eitt tímabil eftir hjá Kiel áður en hann heldur til Danmerkur og gengur til liðs við Álaborg sumarið 2027.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top