Juri Knorr til PSG
PSG

Juri Knorr gengur til liðs við Paris Saint-Germain sumarið 2027. Franska félagið staðfesti í dag að þýski landsliðsmaðurinn hefði samið til ársins 2030.

Knorr yfirgefur danska félagið, Álaborg ári áður en samningur hans átti að renna út. Danska félagið lýsir sölunni sem þeirri stærstu í sögu félagsins, en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

„Hann hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn besti miðjumaður Evrópu. Leiksýn hans, markaskorun og leiðtogahæfileikar verða okkur mikill styrkur,“ segir Thierry Omeyer, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar PSG, í tilkynningu félagsins.

Knorr er fæddur árið 2000 og lék meðal annars með GWD Minden og Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi áður en hann gekk til liðs við Álaborg. Hann varð þýskur bikarmeistari með Rhein-Neckar Löwen árið 2023.

Álaborg hefur gefið það út að félagið hafi þegar tryggt sér eftirmann Knorrs og muni kynna hann á næstu dögum. Danski miðillinn Rygtebørs telur líklegt að það sé Færeyingurinn Elias Ellefsen á Skipagøtu, leikmaður THW Kiel. Álaborg hefur ekki staðfest það.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top