Erlingur Birgir Richardsson, einn af þjálfurum karlaliðs ÍBV, hefur verið ráðinn sem þjálfari þýska liðsins GWD Minden. Þetta tilkynnir ÍBV en rætt var um málið í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins sem kemur út á næstu mínútum. Í tilkynningu ÍBV segir að Minden virkjuðu kaupákvæði í samningi Erlings og tekur hann því við liðinu strax frá og með deginum í dag. ,,Við hjá ÍBV erum afar þakklát fyrir það góða starf sem Erlingur hefur unnið hjá félaginu í gegnum árin og óskum honum góðs gengis í þessu spennandi verkefni sem er framundan hjá honum." Erlingur hefur starfað í þjálfarateymi meistaraflokks karla með Sigurði Bragasyni og Bergvini Haraldssyni. Bergvin mun taka við sem aðalþjálfari liðsins og verður Sigurður honum til halds og trausts. Bergvin hefur starfað sem yfirþjálfari og við þjálfun yngri flokka hjá ÍBV og mun hann halda því áfram samhliða þessu nýja verkefni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.