Haukur er óumdeildur – besti 16 ára leikmaður Íslands í sögunni
Tom Weller / AFP)

Það vakti athygli í vikunni þegar Logi Geirsson skrifaði á samfélagsmiðlum að Brynjar Narfi Arndal væri besti 16 ára leikmaður sögunnar. Stór orð, og vissulega er Narfi gríðarlega efnilegur leikmaður. Hann á þó enn nokkuð í land með að jafna það sem Selfyssingurinn Haukur Þrastarson afrekaði aðeins 16 ára gamall tímabilið 2017-18.

Frammistaða Hauks það tímabil var slík að hann var ekki lengur einungis efnilegasti leikmaður sinnar kynslóðar heldur orðinn einn af eftirtektarverðustu og bestu leikmönnum efstu deildar, undir smásjá helstu stórliða Evrópu. Vorið 2018 skilaði frammistaðan honum sæti í íslenska A-landsliðinu; enn aðeins 16 ára gömlum.

Tímabilið 2017-18 kom Haukur nánast fullskapaður inn í efstu deild með Selfossi. Hann var ekki ungur og efnilegur leikmaður að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki, heldur varð hann strax einn af burðarásum liðsins.

Og það var ekkert miðlungslið. Selfoss var á þessum árum í fremstu röð og eitt af þremur bestu liðum landsins. Sú staðreynd segir kannski meira en margt annað um hversu langt Haukur var kominn aðeins 16 ára gamall.

Hann tók við stjórnartaumunum í sóknarleiknum og stýrði leik liðsins af ótrúlegri yfirvegun. Óttaleysið skein úr honum. Þarna var kominn leikmaður sem hikaði ekki við að taka ábyrgð þegar mest á reyndi. Það sem vakti þó einna mesta athygli var hversu þroskuð og öguð spilamennska hans var. Haukur lék ekki eins og 16 ára strákur að reyna að fóta sig í deildinni, heldur eins og leikstjórnandi sem hafði verið þar árum saman.

Stal fyrirsögnunum

Haukur stal fyrirsögnunum þennan vetur fyrir átta árum síðan. Það var ekki einungis aldurinn sem vakti athygli, heldur hversu stórt hlutverk hann hafði þegar fengið í sterku liði Selfyssinga og hversu afgerandi framlag hans var bæði í vörn og sókn.

Sebastian Alexandersson orðaði það afdráttarlaust í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport:

„Ég hef ekki séð betri 16 ára leikmann. Ef við tökum alla þessa súpertalenta sem við höfum átt í gegnum árin og berum þá saman 16 ára gamla, í meistaraflokki, með þetta stórt hlutverk og þetta gott framlag bæði í vörn og sókn. Hann er einstakur.“

Tölfræðin laug ekki

Þetta tímabil skoraði Haukur 139 mörk og gaf 128 stoðsendingar í efstu deild. Ótrúlegar tölur frá 16 ára leikmanni.

Framlag hans fólst þó í miklu meira en markaskoruninni einni. Haukur var orðinn einn af burðarásum Selfyssinga og tók á sig ábyrgð sem fáheyrt er að 16 ára leikmanni sé treyst fyrir. Hann var leiðtogi í liði sem var í fremstu röð á Íslandi.

Frammistaðan vakti verðskuldaða athygli. Haukur var valinn efnilegasti leikmaður Olísdeildarinnar og áður en tímabilinu lauk var hann kominn í íslenska A-landsliðið, enn aðeins 16 ára gamall.

Flest bestu lið Evrópu kepptust um að fá hann í sínar raðir en 18 ára gamall samdi hann við pólska stórliðið Kielce og nú 8 árum síðar er hann einn af bestu leikmönnum þýsku Bundesligunnar.

Narfi við skriftir

Brynjar Narfi Arndal er einstakur leikmaður og situr nú við skriftir á upphafsköflum eigin sögu, með handboltann við hönd. Hann er þegar kominn í fámennan hóp þeirra leikmanna sem hafa vakið gríðarlega athygli aðeins 16 ára gamlir. Hæfileikarnir leyna sér ekki og ljóst er að þar fer einn efnilegasti leikmaður sinnar kynslóðar.

En ferillinn er enn rétt að byrja.

Á þessum aldri voru leikmenn á borð við Aron Pálmarsson og Gísla Þorgeir Kristjánsson einnig komnir inn í meistaraflokk og farnir að sýna hvað í þeim bjó. Haukur Þrastarson hafði hins vegar þegar tekið annað og stærra skref. Hann var orðinn burðarás í einu besta liði landsins, skilaði fádæma tölfræði og hafði unnið sér sæti í A-landsliðinu.

Þangað á Narfi enn nokkurn veg að fara. Það dregur þó ekkert úr hæfileikum hans. Þvert á móti. Að vera yfirhöfuð nefndur í sömu andrá og Haukur Þrastarson 16 ára er hrós út af fyrir sig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top