Danska úrvalsdeildarfélagið TMS Ringsted, þar sem Íslendingurinn Ísak Gústafsson leikur, hefur gripið til breytinga á þjálfarateymi sínu eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Fyrrverandi danski landsliðsmaðurinn Morten Olsen, sem gegnir starfi íþróttastjóra félagsins, hefur nú bæst í þjálfarateymið hjá bróður sínum, Kenneth Olsen. Ringsted hefur átt erfitt uppdráttar í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og var fyrir breytinguna í 13. sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig eftir 13 umferðir. Forráðamenn félagsins hafa því ákveðið að grípa til aðgerða í von um að snúa gengi liðsins við. Morten Olsen, sem á að baki langan og farsælan feril sem leikmaður og lék meðal annars með danska landsliðinu, mun nú taka virkari þátt í þjálfun liðsins. Hann verður þar með hluti af þjálfarateyminu ásamt bróður sínum Kenneth Olsen, sem er aðalþjálfari Ringsted, og aðstoðarþjálfaranum Rasmus Nielsen. Morten segir að ákvörðunin hafi verið tekin til að koma með ferska sýn inn í þjálfarateymið og reyna að finna lausnir á þeim vandamálum sem liðið hefur glímt við. „Stundum þegar maður er í erfiðri stöðu geta þjálfarar fest sig í ákveðnum venjum og átt erfitt með að sjá hlutina frá öðrum sjónarhornum. Þess vegna teljum við þetta bestu lausnina eins og staðan er núna. Kannski sjáum við eitthvað nýtt, kannski ekki,“ sagði Morten Olsen í samtali við TV 2 Sport. Ísak Gústafsson er á sínu öðru tímabili með Ringsted en hann leikur í hægri skyttustöðunni hjá danska félaginu. Hann hefur því fengið að kynnast erfiðum veruleika dönsku úrvalsdeildarinnar þar sem Ringsted hefur átt í miklum vandræðum með að safna stigum. Félagið hefur þegar gripið til fleiri aðgerða til að styrkja umgjörð liðsins, meðal annars með því að bæta við markverði og fá til sín þjálfara sem sérhæfir sig í andlegri þjálfun leikmanna. Morten Olsen verður því bróður sínum og leikmönnum Ringsted til aðstoðar í þeim 13 leikjum sem eftir eru af grunnkeppni dönsku úrvalsdeildarinnar og í þeim leikjum sem taka við að henni lokinni. Morten var þegar sestur á varamannabekk Ringsted í leik liðsins gegn Fredericia í gærkvöldi en breytingarnar voru tilkynntar fyrir þá viðureign.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.