Spænski landsliðsmaðurinn Djordje Cikusa er sagður vera á förum frá Barcelona næsta sumar. Hinn tvítugi leikmaður vill fá meiri spilatíma og eru fjögur félög þegar nefnd sem mögulegir áfangastaðir hans. Samkvæmt spænska íþróttamiðlinum Mundo Deportivo, sem handboltamiðillinn rthandball vitnar til, stefnir Djordje Cikusa á að yfirgefa Barcelona að loknu yfirstandandi tímabili. Cikusa er talinn eitt mesta efni spænsks handbolta en hefur átt erfitt með að vinna sér fast sæti í leikmannahópi spænska stórliðsins. Cikusa leikur í stöðu hægri skyttu og hefur þrátt fyrir ungan aldur þegar fengið tækifæri með spænska landsliðinu. Samkeppnin um mínútur hjá Barcelona er hins vegar mikil og er leikmaðurinn sagður vilja finna sér nýtt félag þar sem hann fær stærra hlutverk og betri tækifæri til að þróast áfram. Fjögur félög eru nefnd til sögunnar sem mögulegir áfangastaðir Cikusa. Það eru spænska félagið Granollers, Dinamo Búkarest í Rúmeníu, Sporting í Portúgal og franska félagið Fenix Toulouse.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.