Í beinni: Dregið í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins
Sævar Jónasson

Dregið verður í 8-liða úrslit Powerade-bikars karla og kvenna í dag klukkan 12:15. Drátturinn fer fram á Oche í Kringlunni og verður sýndur í beinni útsendingu á YouTube-rás Handknattleikssambands Íslands og Livey.

Átta lið eru eftir í keppninni hjá hvoru kyni og verður spennandi að sjá hvaða lið dragast saman í næstu umferð. Hjá körlunum eru sjö lið úr Olís-deildinni eftir ásamt Gróttu sem er eina liðið úr Grill 66-deildinni sem enn er í keppninni.

Hjá konunum eru hins vegar öll átta liðin úr Olís-deildinni. Þar vekur meðal annars athygli að ÍBV er úr leik eftir dramatískt tap gegn Stjörnunni í tvíframlengdum leik fyrr í vikunni.

Þessi lið eru í pottinum hjá körlunum:

  • Afturelding
  • FH
  • Grótta
  • Haukar
  • ÍBV
  • Valur
  • Víkingur
  • Þór

Þessi lið eru í pottinum hjá konunum:

  • Fram
  • Haukar
  • HK
  • ÍR
  • KA/Þór
  • Selfoss
  • Stjarnan
  • Valur

Drátturinn hefst klukkan 12:15 og verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér að neðan:

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top