Mótherjar Íslands á HM verða án lykilmanns
Anne-Christine POUJOULAT / AFP

Norður-Makedónía, sem verður í riðli með Íslandi á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í janúar, verður án hægri hornamannsins Nenad Kosteski á mótinu. Kosteski glímir við alvarleg meiðsli aftan í læri og þarf að gangast undir aðgerð sem heldur honum frá keppni næstu mánuði.

Kiril Lazarov, landsliðsþjálfari Norður-Makedóníu, hefur skilað inn 35 manna leikmannalista sínum fyrir heimsmeistaramótið en Kosteski er ekki á listanum vegna meiðslanna. Hann missti einnig af tveimur síðustu landsleikjum Norður-Makedóníu, gegn Lúxemborg og Grikklandi, vegna meiðslanna en nú er ljóst að þau eru alvarlegri en vonast var til.

Samkvæmt makedónska miðlinum Gol.mk þarf Kosteski að gangast undir aðgerð og er búist við að hann verði frá keppni í nokkra mánuði. Kosteski leikur með Úlfari Monsa Þórðarsyni í Alkaloid.

Lazarov hefur einnig gert breytingu á 35 manna listanum frá síðasta landsliðsverkefni. Filip Taleski, sem er án félags eftir að hafa yfirgefið Ohrid, er ekki á listanum en í hans stað kemur Mihajlo Mladenović, sem leikur með franska félaginu Créteil.

Norður-Makedónía hefur undirbúning sinn fyrir heimsmeistaramótið þann 22. desember en liðið er í riðli með Íslandi, Barein og Japan. Leikir riðilsins fara fram í Magdeburg í Þýskalandi. Heimsmeistaramótið fer fram dagana 13.–31. janúar 2027.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top