Það var skemmtilegur hausverkur að velja hópinn
Raggi Óla

Hvíti riddarinn mætir Gróttu í 16-liða úrslitum Powerade-bikars karla í kvöld. Ægir Líndal, þjálfari Hvíta riddarans, segir sína menn spennta fyrir verkefninu og telur liðið eiga góða möguleika á að stríða Gróttumönnum.

„Leikurinn leggst vel í mig. Þetta er skemmtileg viðureign gegn ungum og hröðum mönnum í Gróttu sem verður skemmtilegt að reyna að loka á. Strákarnir eru spenntir og undirbúningurinn hefur verið virkilega flottur hjá þeim,“ sagði Ægir í samtali við Handkastið.

Ægir segir mikla breidd vera í leikmannahópi Hvíta riddarans og að það hafi verið ákveðinn höfuðverkur að velja hópinn fyrir bikarleikinn.

„Það er alltaf skemmtilegur hausverkur að velja í hóp, sérstaklega í bikarnum þar sem allir vilja spila. Við erum með mjög flotta leikmenn í öllum stöðum, marga sem ættu að vera að spila í Grillinu, en ég valdi hópinn sem gefur okkur besta möguleikann í leiknum.“

Hvíti riddarinn er skipaður leikmönnum sem hafa spilað lengi saman og margir þeirra búa yfir reynslu úr Olís-deildinni. Ægir telur samheldni og reynslu vera einn helsta styrkleika liðsins.

„Örugglega aðalstyrkleiki okkar er hvað við erum búnir að spila lengi saman. Þetta eru allt strákar sem hafa verið saman síðan í yngri flokkum og margir með reynslu úr Olís-deildinni. Við erum með flotta útilínu sem getur skapað færi fyrir okkur og virkilega flotta varnarmenn sem þekkjast vel. Svo má ekki gleyma Smára í markinu sem er löngu búinn að vera kominn í Grillið.“

Ægir ber Gróttuliðinu vel söguna en segir sína menn vita hvað þurfi til að eiga möguleika á að slá liðið úr keppni.

„Grótta er virkilega sterkt og skemmtilegt lið. Þetta eru allt ungir og efnilegir leikmenn. Þeir eru með flotta hornamenn og miðjumann sem getur skapað góð færi.“

„Við vitum hvernig bolta Grótta spilar og hvað við þurfum að gera til að eiga sem besta möguleika á að vinna þá. Ef við náum að loka á hraðaupphlaupin þeirra og hraðar miðjur þá ætti þetta að verða skemmtilegur leikur,“ sagði Ægir Líndal að lokum en liðið í kvöld hjá Hvíta Riddaranum samanstendur af leikmönnum sem leika með liði Hvíta Riddarans 2 í 2.deildinni.

Leikur Hvíta Riddarans og Gróttu hefst klukkan 19:30 í kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top