Haukar verða í pottinum í næstu umferð eftir þægilegan sigur
Sævar Jónasson)

Haukar og Stjarnan mættust á Ásvöllum í leik sem var að ljúka. Haukar náðu fljótt góðu forskoti þrátt fyrir að gestirnir hafi skorað fyrstu tvö mörk leiksins en heimamenn voru yfir með ellefu mörkum í hálfleik, 19-8.

Haukarnir gáfu ekkert eftir í þeim síðari og lönduðu að lokum ellefu marka sigri, 35-24 og Haukar verða í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð Powerade-bikar karla.

Atkvæðamestur í liði Hauika var Freyr Aronsson en hann skoraði tíu mörk í kvöld. Sigurður Jefferson skoraði fimm. Össur Haraldsson og Andri Fannar Elísson skoruðu fjögur og aðrir minna. Grétar Ari Guðjónsson varði fimmtán bolta í marki Hauka.

Atkvæðamestur í liði Stjörnunnar var Ísak Logi Einarsson en hann skoraði sjö mörk. Bjarki Jóhannsson skoraði fimm og Tandri Már Konráðsson þrjú, aðrir skoruðu minna. Markverðirnir hjá Stjörnunni fundu sig ekki en Róbert Örn Karlsson og Sigurður Dan Óskarsson náðu að verja fjögur skot hver.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top