Erlingur Richardsson stýrði Minden til sannfærandi útisigurs á Ludwigshafen, 30–21, í þýsku 2. Bundesligunni í gærkvöldi. Þetta var annar sigur liðsins í jafn mörgum leikjum undir stjórn Erlings, sem tók nýverið við þjálfun þess. Minden vann Dessau, 40–37, í fyrsta leik hans við stjórnvölinn. Minden byrjaði vel en heimamenn komust í 6–5 eftir um fjórtán mínútur. Þá tóku gestirnir öll völd á vellinum og unnu það sem eftir lifði fyrri hálfleiks, 11–1. Minden fór því með níu marka forskot í leikhlé, 16–7. Ludwigshafen skoraði fyrstu þrjú mörk síðari hálfleiks en Minden náði aftur tökum á leiknum. Forskotið varð mest tólf mörk, 28–16, áður en niðurstaðan varð níu marka sigur. Daniel Astrup Pedersen var markahæstur hjá Minden með sjö mörk, Mats Korte skoraði fimm og Karolis Antanavičius fjögur. Malte Semisch varði tíu skot í marki liðsins. Hjá Ludwigshafen var Marc-Robin Eiselmarkahæstur með sex mörk og Phileas Daniel skoraði fimm. Minden er í sjöunda sæti deildarinnar með sjö stig eftir sjö leiki. Næsti leikur liðsins er á heimavelli gegn toppliði Eintracht Hagen föstudaginn 16. október.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.